Jólahlaðborð Freyjunnar er laugardaginn 22.desember kl. 21:00. Það verður haldið á Lækjarbrkku við Bakarabrekku niðri í miðbæ.
Þeir sem vilja sjá frekari upplýsingar um Brekkuna góðu: http://laekjarbrekka.is/hopamatsedill.php#jolahladbord
Þeir sem eru klárir: Andri, Adda, Arnar, Anna, Davíð, Finnur, Hemmi, Íris, Þórunn.
Þeir sem hafa ekki gefið endalegt svar eru: Brynjar og Eva
Er ég að gleyma einhverjum????
29 nóvember 2007
22 nóvember 2007
22.nóvember 2007
Jæja....
Kominn tími á eitt stykki pistil eða svo.
Engir skipulagðir fundir hafa átt sér stað í Freyjuklúbbnum að undanförnu að frátöldum gríðargóðum fundi á Víkurströndinni um daginn þegar kex og ostar voru á boðstólnum. Mexíkó osturinn var hrikalega skemmtilegur líkt og kvöldið í heild sinni. Ýmis málefni voru skeggrædd þetta kvöldið þó að sumir hafi meira verið í drykkjukeppni við sjálfan sig. Sá hinn sami endaði öruggur niðri í bæ. Guðrún markmaður var gestur fundarins en auk Freyjumeðlima voru mættir bílstjórinn, Jokkim og fylgikonu bílstjóra.
Það mál sem rætt var hvað mest var utanlandsferð næstkomandi vor eða fljótlega eftir vorpróf. Meirhluti Freyjunnar voru á því að leggja ætti Bandaríkin undir sig þetta árið og auk þess að líta við í S-Amerkíku. Virtur bílstjóri Freyjunnar auk gjaldkera geta kannski frætt okkur um hvað land er heitast í dag.
Nokkrum dögum síðar kom sú skemmtilega hugmynd upp að skella sér á jólahlaðborð og var sú hugmynd kæfð við fæðingu..... Margir góðir kostir hafa verið bornir á borð en líklegast er að Freyjan hendi sér á stað nálægt miðbænum þann 21.desember næstkomandi. Stemning hefur myndast að undanförnu um Vox á Hótel Hilton, Nordica. Ritari veit ekki nákvæmlega hver er í jólahlaðborðsnefnd er hann heldur þó að Finnur auk framkvæmdavaldsins séu að skoða kosti og galla þessa helstu staða víðsvegar um borgina.
Ég held að það sé ekki fleira í bili.....
Spurning hvort gjaldkerinn taki puttann úr rassinum á sér og fari að koma myndum á netið. Bæði bústaðaferðamyndirnar sem hann var næstum því búinn að glata með sínum aulaskap auka Herrakvöldsmynda.

Poka-Ása hvað....
10 október 2007
Freyjurnar komnar á vaktina aftur....
Úff...
eftir 2 mánaða pásu koma Freyjurnar tvíefldar til baka. Þar á undan var gríðarlegt álag sem var toppaði með góðri Þjóðhátíðarferð. Eitthvað sem verður klárlega ekki endurtekið að ári.
Háttvirtur formaður Freyjunnar, Freyjan sjálf, kom með mjög slaka hugmynd um daginn. Freyjuhittingur á jólahlaðborði í desember. Ég held að við séum búin að staðfesta þessa uppákomu. Það eina sem setur strik í reikninginn hennar Erlu Gísla, er prófatími Bíótöggunnar. Það er búið að vera svo mikið að gera hjá honum að undanförnu, en hann ætlað að harka þetta af sér og skoða próftöfluna á næstu dögum og vonandi í kjölsoginu af því láta nefndarmenn vita.
Annað atriði sem er á takteinunum er Árshátíðarferð Freyjunnar 2008. Við eigum eftir að ákveða staðsetningu þó að Freyjuhjónin vilji fara til Portúgal, og þar sem þau hafa framkvæmdavald og eru með 3 af 5 atkvæðum að baki sér geta þau slegið ferðinni föstu. Það er klárt mál að þetta mál verður ekki svæft í nefnd.
Nóg í bili.. 

Fátt sem toppar Ægi(s)síðuna
16 ágúst 2007
11 ágúst 2007
Þjóðhátíðarmyndir
07 ágúst 2007
Sækja farangur
Jæja....
Þá eru leiðindin loksins á enda og ekki orðið seinna en vænna að sækja farangurinn til Arnars. Tekið verður úr kerrunni kl. 20:30 í kvöld, þriðjudagskvöld.
Kveðja,
Þorgerður Katrín
Þá eru leiðindin loksins á enda og ekki orðið seinna en vænna að sækja farangurinn til Arnars. Tekið verður úr kerrunni kl. 20:30 í kvöld, þriðjudagskvöld.
Kveðja,
Þorgerður Katrín
01 ágúst 2007
Vestmannaeyjar
Því miður þá styttist í Eyjar. Mestu gleðitíðindin þessa stundina eru þau að föstudagurinn lítur aðeins betur út, en hann gerði fyrir nokkrum dögum síðan, í veðrinu þ.e.a.s. Laugardagurinn verður betri og betri eftir því sem líður á daginn og á sunnudag og mánudag verður fínasta veður með 15-16 stiga hita og léttskýjuðu skv. Sigga stormi, vedur.is og belgingur.is. Nýjustu fréttir herma að vélsleðakerran sem er á stærð við 20" gám, verður í skipinu aðfaranótt föstudagsins. Þess vegna verður staflað í kerruna á B13 (Bollagarðar 23) kl. 22:30 á morgun, fimmtudag.
Einnig skal leggja 7000 kr inn á reikninginn hans Arnars fyrir seinni helmingnum af gistingunni: 1151-05-404623, kt. 190583-3339. Einnig skulu þeir sem einhverra hluta vegna eru eftir að greiða fyrri hlutann, borga ekki seinna en í kvöld.
Í öðrum fréttum heppnaðist pottafundurinn helvíti vel á þriðjudaginn og einnig Red Chilli í kjölsogið. Það sem farið var í á fundinum sem ekki hefur verið nefnt hérna var eftirfarandi:
Einnig skal leggja 7000 kr inn á reikninginn hans Arnars fyrir seinni helmingnum af gistingunni: 1151-05-404623, kt. 190583-3339. Einnig skulu þeir sem einhverra hluta vegna eru eftir að greiða fyrri hlutann, borga ekki seinna en í kvöld.
Í öðrum fréttum heppnaðist pottafundurinn helvíti vel á þriðjudaginn og einnig Red Chilli í kjölsogið. Það sem farið var í á fundinum sem ekki hefur verið nefnt hérna var eftirfarandi:
- Skipt var í skemmtihópa fyrir hvert kvöld í Eyjum og skulu þeir halda uppi fjörinu með leikjum og þess legu. Föstudagur: Adda, Davíð, Garðar, Gussi og Orri. Laugardagur: Andri, Arnar, Eva, Finnur, Anna. Sunnudagur: Brynjar, Hemmi, Ragna Karen, Stína, Þórunn og Íris Björk. (man ekki í hvaða hóp Íris, Stína og Anna, Garðar, Gussi og Orri voru í).
- Stefnt var að því að hafa samræmingu í matseld þannig að einn væri ekki með goðapylsur á meðan hinn væri með innlærisvöðva og töflur með því. Yfirkokkurinn, hann Davíð og hans aumi aðstoðarmaður ákváðu eftirfarandi í dag: Föstudagur - Hamborgarar á grillinu. Laugardagur - Kjúklingabringur (helst ekki grillaður kartöflur). Sunnudagur - Kjöt (lamb, svín o.þ.h.). Einnig ákváðu þeir það að menn skyldu hafa pylsur upp á að hlaupa á daginn og yfir hádegið. Það hafa hafa það hugfast að þetta er engin skylda en engu að síður mjög gott viðmið.
- Rassa-Gulli verður að fara með til Eyja!
- Skemmtileg tónlist skal í hávegum höfð.
- Búa sig eftir veðri!
Læt nokkrar myndir fylgja frá því á B13 og B43 um daginn.
Rassa-Gulli
Að sjálfsögðu
Einmitt
Góður svipur

ÖÖÖmmmurleg!!!

Sleingja 19" upp yfir axlir eftir klósettferð
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)












